Samkenndarmiðuð meðferð
Hlý og persónuleg nálgun sem styður þig á þinni vegferð
Hvað er samkenndarmiðuð meðferð (Compassion Focused Therapy – CFT)
Samkenndarmiðuð meðferð, eða CFT, er meðferðarleið sem hjálpar fólki að þróa meiri sjálfsmildi, innri stuðning og skilning í eigin garð.
Í CFT er unnið með það hvernig við tölum við okkur sjálf, sérstaklega þegar okkur líður illa, gerum mistök eða upplifum skömm, kvíða eða vanmátt. Margir hafa sterka innri gagnrýnisrödd sem getur viðhaldið vanlíðan, lágu sjálfstrausti og tilfinningu um að vera aldrei nóg.
Í meðferðinni lærum við að mæta okkur sjálfum með meiri hlýju, skýrleika og styrk. Markmiðið er ekki að afsaka allt eða forðast ábyrgð, heldur að byggja upp heilbrigðari innri stuðning svo við getum tekist á við lífið af meiri ró, jafnvægi og seiglu.
CFT var þróuð af sálfræðingnum Dr. Paul Gilbert og byggir meðal annars á hugrænni atferlismeðferð, þróunarsálfræði, taugavísindum og hugmyndum um núvitund og samkennd.
Meðferðin getur verið sérstaklega gagnleg fyrir fólk sem glímir við sjálfsgagnrýni, skömm, lágt sjálfstraust, kvíða einkenni, streitu, kulnun, áföll, depurð eða tilfinningalegt ójafnvægi. Hún hentar einnig þeim sem vilja læra að standa betur með sjálfum sér og þróa hlýrra, öruggara og styðjandi samband við sjálfan sig.
Hvernig fer samkenndarmiðuð meðferð (CFT) fram?
Meðferðin hefst gjarnan á greiningu þar sem farið er yfir ástæður þess að leitað er aðstoðar og hvernig lífssaga þín lítur út. Í kjölfarið færð þú fræðslu um aðferðina og kenningarnar sem liggja henni til grundvallar. Síðan er unnið að settum markmiðum með m.a greiningu á innri mynstrum, fjölbreyttum æfingum og verkefnum. Með þessari nálgun byggjum við upp dýrmæta verkfærakistu sem hjálpar þér að rjúfa neikvæð hugsunarmynstur, draga úr skömm og efla sálrænan sveigjanleika í þínu daglega lífi.
Meginstoðir samkenndarmiðaðrar meðferðar eru:
Sjálfsmildi: Margir glíma við innri gagnrýnisrödd sem getur verið niðurrífandi. CFT hjálpar til við að breyta þessari rödd í rödd samkenndar og sjálfsstuðnings.
Sjálfsstjórn og jafnvægi: Meðferðin leggur áherslu á að hjálpa skjólstæðingnum að stýra tilfinningum sínum og skapa jafnvægi á milli ólíkra tilfinningakerfa (kerfin þrjú) til að auka sálrænan sveigjanleika, bæta tillfinningastjórnun og vellíðan.
Samkenndar- og mildisæfingar: Notast er m.a. við hugskotsæfingar (e. visualisations) sem miða að því að minnka skömm og auka samkennd. Markmiðið er að æfa hugann í að sýna sjálfum sér skilning og hlýju í stað þess að bregðast við erfiðleikum með sjálfsgagnrýni, skömm eða vanlíðan.
Skilningur á þjáningu: Hér er litið á þjáningu sem hluta af lífinu og stefnt er að því að skjólstæðingurinn þrói með sér mildi gagnvart eigin erfiðleikum.
Fyrirkomulag og samtalið
Viðtöl fara fram á íslensku eða sænsku. Hvert samtal er 60 mínútur að lengd og fer fram í gegnum fjarfundabúnaðinn Microsoft Teams. Þetta fyrirkomulag býður upp á sveigjanleika og gerir þér kleift að sitja í þínu eigin kunnuglega umhverfi á meðan á samtalinu stendur.
Meðferðin er lifandi ferli þar sem við vinnum saman að þínum markmiðum. Sem hluti af meðferðinni færð þú afhent verkfæri, verkefni og stutt lesefni til að vinna með á milli funda. Markmiðið er að þú öðlist hagnýta færni sem nýtist þér í þínu daglega lífi.
Öryggi og trúnaður
Ég legg mikla áherslu á öryggi og faglega nálgun. Ég er bundin fullri þagnarskyldu og fylgi í hvívetna þeim siðareglum sem gilda um meðferðaraðila (s. samtalsterapeut) í Svíþjóð. Það er undirstaða þess að þú getir upplifað þig í öruggu rými hjá mér.
Takmarkanir þjónustunnar
Til að tryggja að hver skjólstæðingur fái þá sérhæfðu aðstoð sem hann þarf á að halda, er mikilvægt að taka fram að þjónusta mín hentar best við vanda eins og sjálfsgagnrýni, lágu sjálfsmati, streitu eða vægum kvíða og vanlíðan.
Þjónusta mín nær ekki yfir eftirfarandi:
Alvarlega geðsjúkdóma eða klínískar greiningar.
Fíknisjúkdóma.
Meðhöndlun á flóknum áföllum (e. complex trauma).
Ef þú glímir við ofangreindan vanda mæli ég með að leitað sé til sérhæfðra heilbrigðisstarfsmanna eða geðheilbrigðisþjónustu þar sem teymi sérfræðinga getur veitt viðeigandi eftirfylgd.
Ingibjörg skapaði öruggt og hlýtt rými þar sem ég gat opnað mig og fengið hjálp við áralöngum kvíða sem byggði á mjög svo neikvæðum hugsunum um sjálfan mig.
Anders L.
Loksins gat ég skilið sjálfan mig betur og unnið með tilfinnininguna að aldrei gera nóg eða vera nóg. Vildi að ég hefði leitað mér aðstoðar fyrr.
Anna S.