a close up of a white flower on a tree

Ingibjörg Inga þerapisti

Leið mín að samkenndarmiðaðri meðferð hefur verið fjölbreytt og lærdómsrík. Rauði þráðurinn í lífi mínu hefur alltaf verið mín djúpstæða innri þörf til að styðja við og valdefla aðra. Þessi köllun hefur fylgt mér frá barnæsku og drifið mig áfram í öllu mínu námi og starfi. Ég brenn fyrir því að hjálpa fólki að finna styrkinn sem býr innra með því, sérstaklega þegar lífið reynir á, og aðstoða það við að breyta mótlæti í nýja innsýn og sjálfsmildi.

Með bakgrunn sem CFT-meðferðaraðili, lögfræðingur og jógakennari, auk náms í jákvæðri sálfræði, hef ég öðlast djúpan skilning á því hvernig líkami, hugur og sál vinna saman. Í yfir fimmtán ár hef ég fylgt fólki í gegnum jóga og hugleiðslu, sú vegferð hefur verið fjölbreytt; allt frá því að reka eigið jógastudíó í Svíþjóð, leiða jóga á kyrrðardögum í Skálholti, yfir í að þróa námskeið fyrir fólk sem glímir við kvíða og þunglyndi. Í gegnum þetta starf hef ég mætt fólki í sínum dýpstu áskorunum og lært hversu mikilvægt það er að mæta hverjum og einum þar sem hann er staddur hverju sinni.

Ég hef í mörg ár skrifað og miðlað fróðleik um persónulegan þroska og sjálfsrækt, auk þess að starfa náið með konum og börnum í viðkvæmri stöðu hjá Kvinnojouren í Svíþjóð. Sú reynsla hefur kennt mér að mæta hverri manneskju af dýpstu næmni og virðingu.

Mín nálgun byggir á því að skapa hlýtt og öruggt rými þar sem við getum skoðað hlutina frá nýjum sjónarhornum. Minn helsti styrkur liggur í að mæta öðrum af hlýju og skilningi, og hjálpa fólki að komast í snertingu við sína eigin sjálfsmildi – sérstaklega þegar sjálfsgagnrýni og erfið lífsreynsla hafa byrgt sýn á eigin verðleika.

Árið 2025 hóf ég sjálfstætt starf sem CFT-meðferðaraðili. Í vinnu minni flétta ég saman gagnreyndum aðferðum sálfræðinnar, næmni líkamans og krafti þess að setja reynslu sína í orð. Ég trúi því, að með því að breyta samtali okkar við okkur sjálf, getum við breytt lífi okkar til hins betra.

a close up of a pink flower on a tree branch

Menntun

  • BA nám í mannréttindum - Háskólinn í Lundi

  • Magister juris - Háskóli Íslands

  • Barnavernd: vinnulag og samtstarf - Endurmenntun HÍ

  • Vinnuréttur - Endurmenntun HÍ

  • Jógakennarnám - Guðjón Bergmann, Yogi Shanti Desai

  • Jógakennaranám (framhalds) Children’s Yoga Instructor education, level 1 and 2 - Kripalu Yoga Centre, Boston

  • Jógakennaranám (framhalds) Lifeforce Yoga® Practitioner Training for Depression and Anxiety, Kripalu Yoga Centre, Boston

  • Jógakennarnám (framhalds) meðgöngujóga - Elisabeth Serrander Stokkhólmi

  • Samtalsmeðferðir í hugrænni atferlismeðferð - Endurmenntun HÍ

  • Jákvæð sálfræði og styrkleikaþjálfun (coaching) - Endurmenntun HÍ

  • Diplóma á meistarastigi í jákvæðri sálfræði - Endurmenntun HÍ

  • leiðbeinandanám í trauma sensitive writing - Write yourself guide program Stokkhólmi

  • Certifierad CFT samtals þerapisti - IPHM Utbildningscenter